Skíðaleiga – gjaldskrá

Því miður er leigan lokuð eins og er vegna sóttvarna!

Í skála sínum í Bláfjölum hefur Ullur til leigu skíðagöngubúnað, skíði, stafi og skó. Þarna geta flestir fundið góðan búnað við sitt hæfi, skór eru frá nr. 29 upp í nr. 47 og skíði og stafir eru í samræmi við það. Stór hluti af búnaðinum er nýr eða nýlegur og öllu er vel við haldið. Þá má langoftast gera ráð fyrir að aðstoð kunnáttumanna fáist í skálanum við að velja búnað við hæfi og fá aðstoð við fyrstu skrefin ef þess er þörf.

Þeir sem eru með sín eigin skíði geta fengið ráðleggingar um skíðaáburð og aðstoð við að bera undir skíðin. Þó er ekki víst að allir skálaverðir treysti sér til að veita þá þjónustu.

Gjaldskrá skíðaleigunnar er sem hér segir:

Fullorðnir (13 ára og eldri)
Allur búnaður  3000 kr.
Skíði  2000 kr.
Skór  500 kr.
Stafir  500 kr.
Rennslisáburður bræddur undir skíði  1000 kr.
Festuáburður  500 kr.

Börn 12 ára og yngri borga ekki leigu fyrir búnaðinn.

Á byrjendanámskeiðum félagsins fá þátttakendur leigð skíði og annan búnað með verulegum afslætti. Gjald fyrir námskeiðið sjálft er 3000 kr.  en 2000 kr. geiðast að auki ef búnaður er leigður.