Veðrið

Því verður ekki á móti mælt að veðrið skiptir gríðarlega miklu máli í skíðaferðum, að ekki sé talað um snjóalög. Á þessari síðu hefur því verið safnað saman nokkrum krækjum sem geta gefið upplýsingar um veður og snjó.

Þegar smellt er á krækjurnar opnast þær í nýjum glugga eða á nýjum flipa.

Veðrið í Bláfjöllum
Vísar á vef Veðurstofu Íslands og birtir nýjustu athuganir frá veðurstöðinni “Bláfjöll”. Stöðin er á einum ljósastaurnum á leið upp á heiði.

Veðursjá – úrkoma
Vísar á vef Veðurstofu Íslands og birtir nýjustu myndir frá veðursjá á Miðnesheiði.

Veðurspákort – yfirlitskort
Áður en rýnt er í “nákvæmar spár” fyrir einstaka staði er hollt að skoða á yfirlitskortum hvernig búast má við að helstu veðurkerfi, hæðir, lægðir og skil, eru líkleg til að haga sér. Forsenda þess að nákvæmir reikningar á veðri á afmörkuðum svæðum (t.d. spákort Belgings) eða á tilteknum stöðum (svo sem myndrænar spár Veðurstofunnar eða yr.no) er að þau reiknilíkön, sem þar liggja að baki, hafi staðsett stóru veðurkerfin rétt.

Veðurspákort – afmarkað svæði
Vísar á vefsíðuna belgingur.is, birtir spákort um hita, vind og úrkomu á Faxaflóasvæðinu. Þarna má velja um spákort þar sem tvö öflugustu veðurreiknilíkön heims, líkan evrópsku veðurreiknimiðstöðvarinnar (ECMWF) og líkan bandarísku veðurstofunnar (GFS) eru lögð til grundvallar. Ráðlegt er að skoða bæði líkönin og bera þau saman (hvort í sínum glugga á skjánum). Ef miklu munar á niðurstöðu líkananna er augljóst að annað hvort þeirra er á villigötum og þar með eru minna en 50% líkur á aðönnur hvor niðurstaðan sé “rétt”.

Veðurspá fyrir Bláfjöll
Vísar á vef norsku veðurstofunnar, yr.no. Áður fyrr dugði ekki að biðja um Bláfjöll, vefurinn fann þau á nokkrum stöðum á landinu en engin þeirra voru þau réttu. Nú er hins vegar orðið hægt að biðja um réttu Bláfjöllin og skilar það spá fyrir stað í 615 m hæð á háhrygg Bláfjalla skammt norður af Eldborgargili. Þótt sá staður sé ekki á hefðbundnu göngusvæði er skekkja vegna staðsetningar væntanlega mun minni en sú skekkja sem almennt má búast við í veðurspám. Hægt er að sjá staðinn á Google Earth með því að smella á krækju neðst á spásíðunni.

Veðurtunglamyndir
Vísar á vef Veðurstofu Íslands og birtir nýjustu mynd frá veðurtungli.

Snjódýpt á landinu
Vísar á vef Veðurstofu Íslands og birtir kort þar sem mæld snjódýpt á veðurstöðvum er birt.

Vefmyndavélar á Hellisheiði, við Þrengslaveg og vegamót Bláfjallavegar á Sandskeiði
Vísar á vef Vegagerðarinnar og birtir myndir af vegum.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.