Bláfjöll í dag páskadag – spor

Gleðilega páska.
Ég var að ræða við Einar rekstrarstjóra skíðasvæðanna og þó það sé strekkingur á svæðinu verður lagt 5 km spor sem verður tilbúið fyrir kl 12 í dag. Samkvæmt Belgingi á að lægja eftir hádegið svo það er um að gera að koma uppeftir og taka góða æfingu fyrir morgundaginn.
Ég geri ráð fyrir að Gunnar Birgis verði með æfingu fyrir börn og unglinga um eða upp úr hádeginu og setur hann væntanlega upplýsingar um það á fésbókina og sendir Andrésar-keppendum tölvupóst.
Þóroddur F.

Bláfjöll 14. mars

Bliða í fjöllunum og kjörið að taka æfingu fyrir Strandagönguna. Ekki skipulögð æfing umfram það sem undirritaður getur reynt að skipa fyrir um á milli 17:30 og 19:00.

Sama spá virðist vera fyrir morgundaginn og er stefnt að æfingum þá undir stjórn Haraldar H / Óskars J.
Þóroddur F.

Mánudagur 12. mars – æfingar – falla niður

Sé að það eru komnir 11 m/s núna kl 15 og búið að loka lyftum þar sem það á að hvessa enn frekar sídegis og því fellur æfing niður í dag.
ÞFÞ

Æfing í Bláfjöllum kl. 18:00 í dag undir stjórn Haraldar Hilmarssonar og væntalega Óskars Jakobs líka. Allir aldurshópar og getuhópar, að mæta og búa sig undir Strandagönguna sem verður á laugardaginn.

Allt á kafi í snjó og spor 5 km.
Þóroddur F.

Sunnudagur 11. mars

Ef veður og snjóalög leyfa er hugmynd að hittast á Miklatúni seinnipartinn á morgun, sunnudag, og taka létta æfingu með smá keppni (t.d. sprettur og boðganga, jafnvel meira) og væri gaman að sjá sem flesta. Nánar hér á síðunni í hádeginu á morgun.
Þóroddur F.

Æfing fyrir börn og unglinga kl. 13 á laugardag í Bláfjöllum

Börn og unglingar eru boðin velkomin á æfingu kl. 13 á laugardag.
Við verðum u.þ.b. 2 tíma og fínt að koma með eitthvað nesti, því við stoppum aðeins í skálanum á miðri æfingu.
Ég lofa miklu fjöri og alveg öruggt að þeim sem mæta mun ekki leiðast.
Þeir sem þetta lesa ættu endilega að hvetja börn nágranna og vina til að koma og prófa. Þau þurfa ekki að koma með neitt með sér annað en gott skap og smá áhuga sem ég vonast til að geta aukið til muna! Allar græjur á staðnum og bara að vera búin til útivistar.

Hlakka til að sjá ykkur
Eiríkur

Bláfjöll dagskrá 5. feb.

Eins og sést á heimasíðu Bláfjalla er lokað þar í dag, laugardag.

Á morgun lítur hins vegar út fyrir mun betra veður og verður barna- og unglingaæfing kl. 11 og síðan innanfélagsmót fyrir ALLA sem ræst er í kl 13. Mótanefndind skipuleggur og er stefnt á boðgöngu á 1 km hring þannig að allir geta verið með, gott er að koma ekki seinna en 12:30 þar sem raða þarf í liðin. Gott væri ef einhver getur gefið sig fram til að sjá um húsið seinnipartinn þ.e. frá ca 15-17.

Æfingahelgi undir stjórn Birgis Gunnarssonar fyrir þá sem skráðu sig í hana er væntanlega á dagskrá kl 11.

Bent er á að það líður að fyrstu Íslandsgöngunni en hún verður á Akureyri um næstu helgi, bendi fólki á að fara að kanna hvort ekki er hægt að fjölmenna í bíla til að halda kostnaði niðri.

Þóroddur F.

Breyting á dagskrá helgarinnar 27.-29. jan.

Vegna slæmrar veðurspár er ákveðið að fresta ÆFINGAHELGI fyrir þá sem ætla að taka þátt í lengri göngum og einnig NÁMSKEIÐI fyrir almennning.

Kannað verður hvort aðstæður, veður og spor, gera mögulegt að halda barna- og unglingaæfingu og almenna æfingu innan Höfuðborgasvæðisins eða í Heiðmörk um helgina.

Fylgist með á síðunni kvölds og morgna.
Þóroddur F.

Spakmæli dagsins: Ekkert skíðasvæði án skafrennings.

Dagskrá helgina 27.-29. janúar 2012

NÁMSKEIÐSHELGI. Kjörðið tækifæri fyrir alla þá sem ætla að taka þátt í göngumótum vetrarins, einnig unglinga, t.d. Íslandsgangan-Vasa. Kennari Birgir Gunnarsson.
Verð 5000 kr. Greiðist við upphaf námskeiðs.
Föstudagur kl. 17-19 bóklegur tími í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal (skrifstofubyggingin sem fyrst er komið að). Farið yfir tækni, þjálfun, undirbúning fyrir lengri göngur t.d. Vasa, val á skíðum, áburð o.fl. Sýnd kennslumyndbönd o.fl.
Laugardagur kl. 11-13 æfing í Bláfjöllum. Farið yfir tækni frá a-ö
Sunnudagur kl. 11-12 æfing í Bláfjöllum – tekið videó af þátttakendum.
Sunnudagur kl. 17-18 tími í Laugardal farið yfir videóupptökur, fyrirspurnir og umræður.
Skráning er hér á vefnum, smellið á næstefstu myndina í dálkinum til hægri!

NÁMSKEIÐ fyrir almenning, grunnatriði í skíðagöngu.
Laugardagur kl. 14-15:30, skráning á heimasíðunni (efst í dálkinum til hægri), verð 1000 kr. greiðist á staðnum, skíðabúnaður fyrir námskeiðið kr 500, takið fram við skráningu hvort þörf er á að leiga búnað.

BARNAÆFING
Laugardagur kl 11-12 þjálfari Gunnar Birgisson.

SKÍÐI FYRIR ALLA: T.d. hreyfihamlaða og blinda, opin kynning í Bláfjöllum á vegum SKÍ sunnudaginn 12. febrúar kl. 11.00 – 16.00. Fólk þarf ekki að skrá sig, bara mæta við Bláfjallaskálann og þar verður fólki vísað áfram.

Allir þurfa að fylgjast með heimasíðunni þar sem breytingar kunna að verða á staðsetningu æfinga eða fresta þarf námskeiðir vegna óhagstæðs veðurs í Bláfjöllum.
Þóroddur F.

Helgin 21.- 22. jan. Æfing, námskeið og snjódagurinn.

ÆFING fyrir lengra komna er stefna í göngumót, kl. 11:00 undir stjórn Óskars Jakobssonar

NÁMSKEIÐ fyrir byrjendur og þá sem vilja bæta sig í skíðagöngu. Annað námskeið vetrarins verður laugardaginn 21. janúar og hefst kl. 13:00 við skála Ullunga í Bláfjöllum. Þátttakendur eru beðnir að mæta kl. 12:30 og námskeiðinu lýkur kl 14:30.

Þátttökugjald er kr 1.000 og greiðist á staðnum. Hægt er að leigja (takmarkaður fjöldi) gönguskíði og skó til að nota á námskeiðinu fyrir 500 kr.

Æskilegt er að fólk skrái sig á námskeiðið svo hægt sé að undirbúa það sem best, t.d. að tryggja hæfilegan fjölda kennara. Langbest er að það sé gert hér á vefnum með því að smella á myndina efst í dálkinum til hægri, fylla í reitina sem þá birtast og smella síðan á “Submit”.

Ef einhverjar spurningar vakna er ágætt að bera þær fram með því að “rita ummæli” við þennan pistil, þá verður þeim svarað.

SNJÓDAGURINN á sunnudaginn, þá gefst öllum tækifæri til að prófa gönguskíði milli kl 12 og 14 við skála Ullunga og fá fyrstu tilsögn, nánar um það síðar.
Þóroddur F.

Æfing fyrir börn og unglinga á golfvellinum við Vífilsstaði.

Á morgun fimmtudag verður æfing fyrir börn og unglinga á golfvellinum við Vífilsstaði í Garðabæ kl. 18-19.30 Af því að við verðum ekki í Bláfjöllum er lán á skíðum því miður ekki í boði að þessu sinni.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.