Æfingar 2011-2012

Janúar 2012

 

Barna- og unglingaæfingar:   Eiríkur Sigurðsson mun sjá um æfingar laugardagana 7. og 14. janúar kl. 13:00. Upplýsingar um fyrirkomulag þessara æfinga í síðari hluta mánaðarins koma síðar.

Trimmæfingar:   Óskar Jakobsson mun leiðbeina og hvetja fólk til dáða laugardagana 7., 14. og 21. janúar kl. 11:00. Þessar æfingar eru hugsaðar fyrir þá sem hafa hug á að reyna sig í keppni, svo sem í mótum Íslandsgöngunnar, svo ekki sé minnst á þá sem hyggjast vinna afrek í stórum göngum í útlöndum. En þetta er einnig tilvalið tækifæri fyrir þá sem langar til að æfa í góðum hóp.

Námskeið fyrir almenning:   Laugardagana 14. og 21. janúar kl. 11:00 gefst þeim sem vilja kynnast skíðagöngu eða ná betri tökum á henni kostur á að fá tilsögn í undirstöðuatriðum í þessari skemmtilegu íþrótt. Nánara fyrirkomulag verður kynnt síðar, fylgist með hér á vefnum!

Snjór um víða veröld 22. janúar:   “Snjódagurinn” er alþjóðlegur og höfðar einkum til barna. Þá verður mikið um dýrðir í Bláfjöllum m. a. verður frí tilsögn í skíðagöngu fyrir alla við Ullarskálann kl. 12-14.  Hér má sjá hina alþjóðlegu vefsíðu snjódagsins.

Æfingahelgi 27.-29. janúar:   Birgir Gunnarsson mun stjórna æfingunum og fá til liðs við sig fleiri góða þjálfara. Markhópurinn er svipaður og á trimmæfingum Óskars og enginn sem setur markið aðeins hærra en “bara að vera með” ætti að sleppa þessu tækifæri. Nánari upplýsingar koma síðar, fylgist með!

 

Gunnar Birgisson hefur verið ráðinn þjálfari fyrir börn og unglinga veturinn 2011-2012. En nú hefur hann verið valinn til að keppa í skíðagöngu fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikum ungmenna í Innsbruck 13.-22. janúar 2012 og munu því aðrir góðir menn leysa hann af þar til eftir Ólympíuleikana. Stefnt er að því að æfingar verði tvær á viku. Æfingar verða í Bláfjöllum eða eftir atvikum í sporum innan höfuðborgarsvæðisins. Fyrirkomulag verður kynnt nánar hér á vefnum (forsíðu) og á Facebook-síðu félagsins. Vetrarstarfinu lýkur með þátttöku í Andrésar andar leikunum á Akureyri.

 

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.