Vantar þig rásnúmer í Vasagöngunni?
26.2.2012 - 16:20 Skrá ummæli
Vegna veikinda hefur losnað rásnúmer í Vasagöngunni. Hafðu samband í síma 557 6740 eða 857 1103.
26.2.2012 - 16:20 Skrá ummæli
Vegna veikinda hefur losnað rásnúmer í Vasagöngunni. Hafðu samband í síma 557 6740 eða 857 1103.
24.2.2012 - 12:25 Skrá ummæli
Mótinu hefur verið frestað til 10. og 11. mars!
Skíðadeild Breiðabliks mun halda meistaramót barna 11-12 ára helgina 3.-4. mars 2012. Keppt verður í bæði alpagreinum og göngu og það hefur orðið að ráði að göngukeppnin verði haldin í samvinnu við Skíðagöngufélagið Ull.
Keppt er með bæði hefðbundinni og frjálsri aðferð. Fyrirkomulag verður að öllum líkindum þannig:
Laugardaginn 3. mars verða gengnir 5 km með hefðbundinni aðferð. Ræst verður með hópstarti kl. 13:00, við skála Ullar, samhliða Bláfjallagöngunni.
Sunnudaginn 4. mars verður ræst kl. 13:00 og þá gengnir 2 til 3 km með frjálsri aðferð. Vegalengd verður ákveðin á laugardeginum með hliðsjón af hvernig brautaraðstæður verða.
Mótsboð og dagskrá meistaramótsins má finna með krækjunum hér fyrir neðan.
Mótsboð – ganga Dagskrá – ganga Mótsboð – alpagreinar Dagskrá – alpagreinar
23.2.2012 - 17:56 Skrá ummæli
Nú er besti tími vetrarins til skíðagöngu framundan og nóg er af snjónum í Bláfjöllum.
Þriðja námskeiðið í skíðagöngu fyrir almenning verður á laugardaginn. Námskeiðið hefst kl. 12:30 og lýkur kl 14:00, þeir þátttakendur sem þurfa skíðabúnað (takmarkaður fjöldi getur leigt búnað hjá okkur) eru beðnir að koma kl. 12:00. Námskeiðið kostar kr. 1000 og skíðabúnaður fyrir námskeiðið kr. 500 og greiðist við upphaf námskeiðsins (enginn posi).
Skráning hér til hliðar.
Fylgist með skilaboðum hér á síðunni á laugardagsmorgun ef fresta verður námskeiðinu vegna veðurs.
Þóroddur F.
22.2.2012 - 16:23 1 ummæli
Bláfjallagöngunni er frestað um óákveðinn tíma!
Bláfjallagangan 2012 fer fram við skála Ullar í Bláfjöllum laugardaginn 3. mars næstkomandi. Gangan er liður í Íslandsgöngunni, almenningsmótaröð Skíðasambands Íslands. Fjórar vegalengdir verða í boði: 20 km (sem gefur stig í Íslandsgöngunni), 10 km, 5 km og 2 km sem er ætlað fyrir níu ára og yngri. Keppendur verða flestir ræstir kl. 13:00, þeir yngstu (9 ára og yngri) verða þó ræstir hálftíma fyrr, kl. 12:30. Þá er mælst til þess að þeir, sem vilja ganga 20 km en fara hægar yfir, hafa t.d. ekki áður lokið 20 km göngu á skemmri tíma en tveimur klukkustundum, hefji gönguna kl. 12:30.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sæti í hverjum flokki (þrír aldursflokkar karla og kvenna í 20 km, opnir flokkar karla og kvenna í 10 km og 5 km) og allir, sem ljúka göngunni fá þátttökupening. Verðlaunaafhending og kaffihlaðborð verður eftir gönguna í skíðaskála Ármanns.
Æskilegt er að fólk skrái sig í gönguna hér á vefnum og nú hefur verið sett upp kerfi til að taka við skráningum. Smellið á myndina efst í dálkinum hér til hægri, fyllið í reitina og smellið síðan á “Submit”. Einnig verður þó hægt að skrá sig í Ullarskálanum fyrir keppni, frá kl. 10:30 til 12:30, athugið þó að þeir, sem eiga að hefja gönguna kl. 12:30 mega ekki draga skráninguna fram á síðustu mínútu.
Hér fyrir ofan er kynningarmynd fyrir gönguna, smellið á myndina til að sjá hana stærri!
19.2.2012 - 10:18 1 ummæli
Vegna verðurs er lokað í Bláfjöllum og námskeið Birgis Gunnarssonar frestast fram í vikuna.
Þóroddur F.
17.2.2012 - 0:18 1 ummæli
Börn og unglingar eru boðin velkomin á æfingu kl. 13 á laugardag.
Við verðum u.þ.b. 2 tíma og fínt að koma með eitthvað nesti, því við stoppum aðeins í skálanum á miðri æfingu.
Ég lofa miklu fjöri og alveg öruggt að þeim sem mæta mun ekki leiðast.
Þeir sem þetta lesa ættu endilega að hvetja börn nágranna og vina til að koma og prófa. Þau þurfa ekki að koma með neitt með sér annað en gott skap og smá áhuga sem ég vonast til að geta aukið til muna! Allar græjur á staðnum og bara að vera búin til útivistar.
Hlakka til að sjá ykkur
Eiríkur
16.2.2012 - 23:36 Skrá ummæli
Það lítur þokkalega út með veður um helgina og ekki vantar snjóinn í Bláfjöllum var þar áðan og er nokkuð harðfenni og mun verða frekar leiðinlegt göngufæri utan spors, ef ekki kemur nýsnjór ofan á hjarnið.
Hvet alla til að notfæra sér skíðafærið, Vasafarar þurfa að ná 3 klst. samfelldri göngu og þurfa bara að hafa nóg að drekka og borða. Skálinn verður væntanlega opinn 10-17 og hægt að leigja skíði. Ekki er skipulögð kennsla fyrir almenning en ekki ólíklegt að hægt verði að fá tilsögn, bara kanna það í skálanum eða hafa samband við undirritaðan ef fleiri en 5 eru í hóp.
Við verðum líka með mannskap á háannatíma í Smáralind ásamt öðrum skíðafélögum að fræða um þau en þar verður einhverskonar vetrarhátíð um helgina.
Þóroddur F.
15.2.2012 - 11:57 1 ummæli
Skíðafélag Ólafsfjarðar endurvekur nú Fjarðargönguna en hún er hluti af Íslandsgöngunni. Gangan fer fram laugardaginn 25.febrúar og hefst kl. 13:00. Boðið er upp á þrjár vegalengdir 5km,
10km og 20 km. Eftir keppni er svo verðlaunaafhending og kaffiveitingar í skíðaskálanum í Tindaöxl.
Nánari upplýsingar, svo sem um keppnisgjald og skráningu, má sjá á myndinni hér til hliðar, smellið á hana til að sjá hana stærri!
14.2.2012 - 16:53 Skrá ummæli
10.2.2012 - 11:18 Skrá ummæli
Hermannsgöngunni á Akureyri, sem átti að fara fram laugardaginn 11. febrúar, hefur verið frestað vegna slæms veðurútlits. Ný dagsetning hefur ekki verið ákveðin en málið er í athugun. Fylgist með á vef Skíðafélags Akureyrar, einnig verður reynt að flytja nýjar fréttir hér um leið og þær berast.