Bláfjöll dagskrá 5. feb.

Eins og sést á heimasíðu Bláfjalla er lokað þar í dag, laugardag.

Á morgun lítur hins vegar út fyrir mun betra veður og verður barna- og unglingaæfing kl. 11 og síðan innanfélagsmót fyrir ALLA sem ræst er í kl 13. Mótanefndind skipuleggur og er stefnt á boðgöngu á 1 km hring þannig að allir geta verið með, gott er að koma ekki seinna en 12:30 þar sem raða þarf í liðin. Gott væri ef einhver getur gefið sig fram til að sjá um húsið seinnipartinn þ.e. frá ca 15-17.

Æfingahelgi undir stjórn Birgis Gunnarssonar fyrir þá sem skráðu sig í hana er væntanlega á dagskrá kl 11.

Bent er á að það líður að fyrstu Íslandsgöngunni en hún verður á Akureyri um næstu helgi, bendi fólki á að fara að kanna hvort ekki er hægt að fjölmenna í bíla til að halda kostnaði niðri.

Þóroddur F.

Bláfjöll í dag sunnudag 29. jan.

Var að koma ofan úr Bláfjöllum. Snjórinn sigið og mikið vatn í honum en ekki að sjá að mikið hafi í raun tekið upp í hlákunni. Það var að byrja að frytsa og vonandi verður hægt að leggja spor á morgun.
Þóroddur F.

Snorri Einarsson nr. 2 á Noregsmeistaramótinu

Snorri Einarssson, sem býr í Noregi, varð annar í 30 km göng, 15 km hefðbundi + 15 frjálsaðferð, rétt í þessu eftir fyrna baráttu um 2-3 sætið við heimamanninn Sjur Rothe frá Voss, þar sem mótið fer fram. Sundby varð nr. 1
Glæsilegt Snorri
Þóroddur F.

Breyting á dagskrá helgarinnar 27.-29. jan.

Vegna slæmrar veðurspár er ákveðið að fresta ÆFINGAHELGI fyrir þá sem ætla að taka þátt í lengri göngum og einnig NÁMSKEIÐI fyrir almennning.

Kannað verður hvort aðstæður, veður og spor, gera mögulegt að halda barna- og unglingaæfingu og almenna æfingu innan Höfuðborgasvæðisins eða í Heiðmörk um helgina.

Fylgist með á síðunni kvölds og morgna.
Þóroddur F.

Spakmæli dagsins: Ekkert skíðasvæði án skafrennings.

Skíðarathlaup í Laugardal

Rathlaupsfélagið Hekla hefur starfað af miklum krafti á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár og eðli málsins samkvæmt er starfsemin mest á sumrin. Hún liggur þó alls ekki niðri á veturna og fimmtudagskvöldið 26. janúar 2012 er efnt til næturrathlaups í Laugardalnum. Vegna þess hve mikið hefur snjóað að undanförnu verður gert ráð fyrir að komast megi leiðar sinnar og að póstunum á skíðum en skíðarathlaup eru vel þekkt í snjóþungum löndum. Þarna er því tilvalið tækifæri til að slá saman tveimur afbragðs skemmtilegum íþróttagreinum, skíðagöngu og rathlaupi. Líklega hentar þó betur að velja aðeins breiðari skíði en mjóstu brautarskíði og í myrkrinu er nauðsynlegt að hafa höfuðljós til að lesa kortið en leikurinn felst í því að finna flögg á stöðum sem merktir eru inn á kort.

Hægt verður að hefja hlaupið hvenær sem er milli kl. 19 og 20 framan við innganginn í sundlaugina í Laugardal og það kostar ekkert að taka þátt í hlaupinu. Meiri upplýsingar má sjá á http://rathlaup.is.

Miðvikudagur 25. jan – spor í borginni

Norðurströnd, frá JL að Byggörðum
Ægisíðan, frá Hofsvallagötu að Flugvelli, hringur
Klambratún – hringur
Þóroddur F.

Dagskrá helgina 27.-29. janúar 2012

NÁMSKEIÐSHELGI. Kjörðið tækifæri fyrir alla þá sem ætla að taka þátt í göngumótum vetrarins, einnig unglinga, t.d. Íslandsgangan-Vasa. Kennari Birgir Gunnarsson.
Verð 5000 kr. Greiðist við upphaf námskeiðs.
Föstudagur kl. 17-19 bóklegur tími í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal (skrifstofubyggingin sem fyrst er komið að). Farið yfir tækni, þjálfun, undirbúning fyrir lengri göngur t.d. Vasa, val á skíðum, áburð o.fl. Sýnd kennslumyndbönd o.fl.
Laugardagur kl. 11-13 æfing í Bláfjöllum. Farið yfir tækni frá a-ö
Sunnudagur kl. 11-12 æfing í Bláfjöllum – tekið videó af þátttakendum.
Sunnudagur kl. 17-18 tími í Laugardal farið yfir videóupptökur, fyrirspurnir og umræður.
Skráning er hér á vefnum, smellið á næstefstu myndina í dálkinum til hægri!

NÁMSKEIÐ fyrir almenning, grunnatriði í skíðagöngu.
Laugardagur kl. 14-15:30, skráning á heimasíðunni (efst í dálkinum til hægri), verð 1000 kr. greiðist á staðnum, skíðabúnaður fyrir námskeiðið kr 500, takið fram við skráningu hvort þörf er á að leiga búnað.

BARNAÆFING
Laugardagur kl 11-12 þjálfari Gunnar Birgisson.

SKÍÐI FYRIR ALLA: T.d. hreyfihamlaða og blinda, opin kynning í Bláfjöllum á vegum SKÍ sunnudaginn 12. febrúar kl. 11.00 – 16.00. Fólk þarf ekki að skrá sig, bara mæta við Bláfjallaskálann og þar verður fólki vísað áfram.

Allir þurfa að fylgjast með heimasíðunni þar sem breytingar kunna að verða á staðsetningu æfinga eða fresta þarf námskeiðir vegna óhagstæðs veðurs í Bláfjöllum.
Þóroddur F.

Snjódagurinn í dag, sunnudaginn 22. janúar 2012

Við Ullungar munum veita börnum yngri en 12 ár sérstaka tilsögn í dag milli kl 12 og 14, fullorðnum verður einnig leiðbeint eftir því sem við höfum mannskap til.
Hægt verður að fá að prófa gönguskíði við skálann okkar, bæði börn og fullorðnir og leigja skíðabúnað einnig.
Milli kl 13 og 15 verður boðið upp á kakó. Lukkumiðar og límmiðar fyrir börnin. Allir velkomnir í skálanna milli 10 og 17 til að fræðast um gönguskíði og meðferð þeirra.
Þóroddur F.

Helgin 21.- 22. jan. Æfing, námskeið og snjódagurinn.

ÆFING fyrir lengra komna er stefna í göngumót, kl. 11:00 undir stjórn Óskars Jakobssonar

NÁMSKEIÐ fyrir byrjendur og þá sem vilja bæta sig í skíðagöngu. Annað námskeið vetrarins verður laugardaginn 21. janúar og hefst kl. 13:00 við skála Ullunga í Bláfjöllum. Þátttakendur eru beðnir að mæta kl. 12:30 og námskeiðinu lýkur kl 14:30.

Þátttökugjald er kr 1.000 og greiðist á staðnum. Hægt er að leigja (takmarkaður fjöldi) gönguskíði og skó til að nota á námskeiðinu fyrir 500 kr.

Æskilegt er að fólk skrái sig á námskeiðið svo hægt sé að undirbúa það sem best, t.d. að tryggja hæfilegan fjölda kennara. Langbest er að það sé gert hér á vefnum með því að smella á myndina efst í dálkinum til hægri, fylla í reitina sem þá birtast og smella síðan á “Submit”.

Ef einhverjar spurningar vakna er ágætt að bera þær fram með því að “rita ummæli” við þennan pistil, þá verður þeim svarað.

SNJÓDAGURINN á sunnudaginn, þá gefst öllum tækifæri til að prófa gönguskíði milli kl 12 og 14 við skála Ullunga og fá fyrstu tilsögn, nánar um það síðar.
Þóroddur F.

Ólympíuleikar ungmenna

Gunnar Birgisson nr 38 af 48 keppendum í 10 km göngu með frjálsri aðferð í morgun. Til hamingju Gunnar.

Gunnar varð í dag, fimmtudag, nr 41 af 50 í 1 km sprettgöngu og komst ekki í milliriðil, 30 bestu, en engu að síður glæsilegt hjá honum.
Þóroddur F.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.